Hagnýtar upplýsingar

Við viljum að þér líði vel hjá okkur. Hér finnur þú allt sem gott er að vita áður en þú kemur – afgreiðslutíma, samgöngur, gistingu og aðra þjónustu.
 

Endurhæfing

Á Reykjalundi er endurhæfing einstaklingsmiðuð og byggir á þverfaglegri teymisvinnu. Markmiðið er að styðja fólk til aukinnar færni, sjálfstæðis og þátttöku í daglegu lífi.

Prjónum saman fyrir árangur!

Prjónauppskriftin – Árangur stendur fyrir samstöðu og stuðning við fólk í endurhæfingu á Reykjalundi.

Allur ágóði af sölu uppskriftarinnar rennur til Hollvina Reykjalundar. Með kaupum á uppskriftinni styður þú mikilvægt starf og færð um leið fallega peysu á prjónana.

VERUM ÖLL HOLLVINIR REYKJALUNDAR

Reykjalundur er ein mikilvægasta endurhæfingarstofnun landsins og órjúfanlegur hlekkur í heilbrigðisþjónustu. Á Reykjalundi njóta árlega á annað þúsund manns, af öllu landinu, endurhæfingar.

SAGA REYKJALUNDAR

Haustið 2025 kom út bókin Saga Reykjalundar sem fjallar í máli og myndum um tilurð og starfsemi þessarar merku stofnunar allt frá tímum berklana og fram á okkar daga.  

HANDBÓK UM HUGRÆNA ATFERLISMEÐFERÐ

HAM er meðferðar- og sjálfshjálparhandbók, skrifuð með það fyrir augum að hún nýtist sem leiðarvísir í meðferð við þunglyndi. Hún hefur einnig verið höfð til hliðsjónar við meðferð kvíða og annarra geðraskana og hefur þá verið aðlöguð að þörfum hvers og eins.

Reykjalundur

Birting vísindagreinar

Þrefalt húrra fyrir Thelmu og samstarfsfólki Nú á dögunum birtist vísindagrein í tímaritinu „Molecular Nutrition and Food Research“ eftir nokkra starfmenn Reykjalundar og samstarfsfólk þeirra hjá Matís og Háskóla Íslands. Greinin er fyrsta grein Thelmu Rúnar Rúnarsdóttur næringarfræðings í...

Reykjalundur

Föstudagsmolar forstjóra 6. júní 2025 – CARF gæðavottun.

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi, Þó við höfum ekki slegið slöku við að þjónusta sjúklinga og skjólstæðinga okkar, hefur Reykjalundarlífið þessa vikuna snúist um CARF-gæðavottun eða faggildinu. Hér hafa erlendir fulltrúar verið að störfum að taka út þjónustu Reykjalundar þar sem við erum að...

Reykjalundur

Andlát í Reykjalundarfjölskyldunni

Ágæta samstarfsfólk, Í dag er flaggað í hálfa stöng hér á Reykjalundi vegna útfarar Guðrúnar Bjargar Sigurbjörnsdóttur, formanns stjórnar Reykjalundar endurhæfingar ehf., en hún verður jarðsett í dag. Í Morgunblaðinu í dag birtist stutt minningargrein sem undirritaður skrifaði fyrir hönd okkar...

Föstudagsmolar

Föstudagsmolar forstjóra 30. maí 2025

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi, Veðrið hefur leikið við okkur undanfarið og vonandi hafa sem flest ykkar náð að njóta og eru að komast í sumargírinn. Þetta er sannarlega ánægjulegt, ekki síst fyrir þá sem muna eftir vorinu og sumrinu í fyrra þegar góðviðriðsdagarnir voru langt því frá of...

Skip to content