Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,
Þó við höfum ekki slegið slöku við að þjónusta sjúklinga og skjólstæðinga okkar, hefur Reykjalundarlífið þessa vikuna snúist um CARF-gæðavottun eða faggildinu. Hér hafa erlendir fulltrúar verið að störfum að taka út þjónustu Reykjalundar þar sem við erum að freista þess að fá alþjóðlega vottun fyrir starfsemi okkar en slík vottun hefur ekki verið veitt hér á landi áður.
Þetta hefur sannarlega verið áhugavert ferli. Úttektin hefur staðið frá morgni til kvölds þar sem farið er yfir ALLT í starfseminni, hvort sem það eru öryggimál, uppsetning ársreikninga, ferli ræstingar eða bein þjónusta við sjúklinga. Tugir starfsmanna hafa verið teknir í viðtöl til að útskýra starfsemina, teymisfundir fagfólks hafa verið metnir og sjúklingar fengnir til að lýsa upplifun sinni og reynslu. Mikill fjöldi skjala hefur verið skoðaður og metin (er þýddur með hjálp túlka og/eða gervigreindar) eins og verkferlar, skráningar heilbrigðisupplýsinga, upplýsingar á heimasíðu og fræðsluefni. Einnig er mikil áhersla á hvernig við metum og mælum starfsemina og árangur þjónustunnar sem og breytingar á lífsgæðum sjúklinganna sem er jú aðaltilgangurinn með starfsemi Reykjalundar. Til fróðleiks voru skoðaðir nákvæmlega 1.720 staðlar tengdir starfseminni okkar.
Hvað er þetta CARF?
CARF stendur fyrir Council on Accreditation of Rehabilitation Facilities, sem á íslensku mætti þýða sem Ráð um faggildingu endurhæfingarstofnana eða einfaldlega CARF faggilding. CARF er sjálfstæð, óháð samtök sem veita gæðavottun (faggildingu) fyrir heilbrigðis- og félagsþjónustuaðila, sérstaklega þá sem bjóða upp á endurhæfingu, heilsutengda þjónustu, geðheilbrigðisþjónustu, þjónustu við fatlað fólk og öldrunarþjónustu.
Markmið CARF er að tryggja að þjónustuaðilar uppfylli ströng fagleg gæðaviðmið og bæti stöðugt þjónustu sína.
CARF faggilding þýðir að stofnun eða þjónustuaðili hefur gengist undir ítarlegt úttektarferli, þar sem metið er hvort starfsemin uppfylli alþjóðlega viðurkennda gæðastaðla sem miða að betri þjónustu fyrir notendur.
Af hverju er gæðavottun eða faggilding mikilvæg í heilbrigðisþjónustu?
Faggilding gegnir lykilhlutverki í því að tryggja gæði, öryggi og fagmennsku í heilbrigðisþjónustu. Hún er formleg staðfesting þess að þjónustan uppfylli viðurkennd fagleg og siðferðileg viðmið, sem eru þróuð af sérfræðingum með hagsmuni notenda í forgrunni.
Helstu ástæður fyrir mikilvægi faggildingar í heilbrigðisþjónustu:
- Tryggir gæði þjónustu
Faggilding byggist á stöðlum sem eru sniðnir að því að tryggja markvissa, áhrifaríka og notendamiðaða þjónustu. Hún stuðlar að samræmdum vinnubrögðum og faglegri framkvæmd. - Eykur öryggi notenda
Með faggildingu eru verklag og ferlar yfirfarnir og metnir með tilliti til öryggis, með áherslu á að lágmarka mistök og áhættu í meðferð og umönnun. - Stuðlar að stöðugum umbótum
Faggilding er ekki eingöngu ástand, heldur ferli. Hún hvetur stofnanir til sjálfsmats og sífelldrar endurskoðunar á starfsháttum með það að markmiði að bæta þjónustuna stöðugt. - Eykur traust og gagnsæi
Notendur, aðstandendur og fjármögnunaraðilar geta treyst því að faggilt stofnun fylgi faglegum viðmiðum og skili þjónustu sem stenst alþjóðlegar kröfur. - Stuðlar að ábyrgð og fagmennsku
Faggilding krefst þess að stjórnendur og starfsfólk beri ábyrgð á gæðum þjónustunnar, þrói hana áfram og vinni samkvæmt skýrum markmiðum og stefnu. - Styrkir samkeppnisstöðu og viðurkenningu
Faggilding er merki um framúrskarandi starfsemi og getur verið forsenda þess að stofnun fái þjónustusamninga eða samstarf við opinbera aðila og tryggingakerfi.
Að auki má bæta við að Reykjalundur, sem leiðandi aðili í endurhæfingarþjónustu, vill eiga þess kost að geta borið starfsemina saman við það sem best gerist í heiminum.
Þetta er í fyrsta skipti sem íslensk heilbrigðisstofnu fer í úttekt vegna CARF-gæðavottunar. Bæði heilbrigðisráðuneyti og Embætti landlæknis hafa styrkt okkur fjárhagslega í þessu verkefni.
Ég er þess fullviss – hvort sem Reykjalundur fær formlega vottun nú eða þarf að reyna aftur – að þá er starfsemin okkar ekki fjarri þessum alþjóðlegum stöðlum. Sannarlega hafa komið fram atriði þar sem við getum gert betur en allar þær ábendingar eru til bóta og til þess fallnar að gera góða starfsemi Reykjalundar enn faglegri, markvissari og betri.
Undirbúningur fyrir vottunarferlið hefur staðið yfir í marga mánuði og verið mest í höndum þríeykis okkar, þeirra Gunnhild verkefnastjóra, Berglindar gæðastjóra og Árdísar Bjarkar framkvæmdastjóra lækninga. Í baklandi þeirra hefur svo verið fjöldi starfsmanna en kannski mætt mest á Guðbjörgu mannauðsstjóra og Guðrúnu Þuríði yfirlækni Efnaskipta- og offituteymis í aðstoðinni svo einhverjir séu nefndir.
Ég vil nota þetta tækifæri og þakka Gunnhild, Berglindi og Árdísi fyrir þeirra mögnuðu vinnu við undirbúninginn. Jafnframt vil ég þakka ykkur öllum sem komið hafið að vottunarferlinu kærlega fyrir þolinmæðina, kraftinn og vinnuna í kringum þetta.
Ég er sannfærður um að CARF-gæðavottun verður glæsilegur stimpill fyrir það magnaða og merkilega starf til endurhæfingar landsmanna sem unnið er hér á Reykjalundi.
Hverjar sem niðurstöðurnar verða, munum við kynna þær, þegar þær liggja fyrir síðar í sumar.
Myndirnar með molunum í dag eru úr lokahófi gæðavottunarinnar sem fram fór í dag.
Til hamingju Reykjalundur – njótið helgarinnar!

Úr lokahófi gæðavottunarinnar
