HAM-Þok
Hugræn atferlismeðferð við þunglyndi og kvíða
Andleg vanlíðan sem oft er fylgifiskur langvinnra veikinda og slysa getur haft hamlandi áhrif á framgang endurhæfingar. Hjá sumum skjólstæðingum er andleg vanlíðan svo sem kvíði og þunglyndi aðalástæða þess að þeir þurfa á endurhæfingu að halda. Hjá öðrum eru sálræn einkenni afleiðingar heilsuvanda, langvinnra verkja, offituvandamála eða þeirrar aðstöðu sem þeir búa við. Hugræn atferlismeðferð er gagnreynt meðferðarform.
Meðferðin stendur til boða fyrir skjólstæðinga á öllum sviðum Reykjalundar.
- Námskeið er tvisvar í viku í þrjár vikur (6 skipti), mánud. og miðvikud. kl. 13:30-15:30 í Mosfelli.
- Er á þriggja til fjögurra vikna fresti.
Sálfræðingur teymisins veitir nánari upplýsingar og sér um skráningu.
- Þunglyndi og kvíði
- Markmið
- Að takast á við vandann
- Tilfinningar
- Fimm þátta líkanið
- Hugsanaskekkjur
- Að breyta neikvæðum hugsunarhætti
- Atferlistilraunir
- Kjarnaviðhorf og lífsreglur
- Sjálfsefling og ákveðni
- Bakslagsvarnir
- Fleiri leiðir
Sjá nánar á HAM-bókar vefnum Reykjalundar
Meðferðarhandbókin kostar kr. 9.544,- en skjólstæðingar Reykjalundar fá helmings afslátt.
Námskeiðið er einnig hægt að taka allt á göngudeild. Afsláttur til öryrkja er 45%. Námsgögn eru innifalin í námskeiðsgjaldi.
Þeir einstaklingar sem útskrifast áður en meðferð er lokið eiga þess kost að ljúka meðferð á göngudeild án endurgjalds.
Rannsóknir hafa sýnt góðan árangur HAM og hefur meðferðin nýst vel sem viðbót við aðra endurhæfingu á Reykjalundi. Gerð var rannsókn á geðheilsusviði Reykjalundar þar sem borin var saman árangur einstaklings- og hópmeðferðar. Þá kom einstaklingsmeðferðin betur út. Sjá nánar https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/08039488.2017.1331263
Síðan hefur hópmeðferðin verið í þróun og nýjustu niðurstöður árangursmælinga á hópmeðferðinni bentu til góðs árangurs við að draga úr einkennum þunglyndis, kvíða og streitu hjá fyrstu 221 þátttakendunum. Það átti við bæði um þátttakendur sem voru innskrifaðir í endurhæfingu og þá sem komu bara á göngudeild. Sjá nánar í meistaraprófsritgerð Sigrúnar Eddu Jónsdóttur sálfræðings: Árangur hópmeðferðar við þunglyndi og kvíða innan endurhæfingar frá 2022.
