Fréttir : Forsíða » Birting vísindagreinar

Þrefalt húrra fyrir Thelmu og samstarfsfólki

Nú á dögunum birtist vísindagrein í tímaritinu „Molecular Nutrition and Food Research“ eftir nokkra starfmenn Reykjalundar og samstarfsfólk þeirra hjá Matís og Háskóla Íslands. Greinin er fyrsta grein Thelmu Rúnar Rúnarsdóttur næringarfræðings í doktorsnámi hennar sem fjallar um áhrif trefjaefnisins kítósans og lífsstílsbreytinga á þarmaflóru og ýmsa heilsufarsþætti hjá konum. Rannsóknin hlaut styrk til 3ja ára frá Tækniþróunarsjóði Íslands.

Greinin heitir: The Effect of Chitosan Supplementation of the Gut Microbiota and Various Health Factors in Icelandic Females: A Placebo-Controlled, Double-Blind, Randomized Trial.

Höfundar eru: Thelma Rún Rúnarsdóttir, Sigurlaug Skírnisdóttir, Hildur Thors, Hjördís Harðardóttir, Karla F. Corral-Jara, Alexandra M. Klonowski, Þórhallur Ingi Halldórsson, Viggó Þór Marteinsson og Marta Guðjónsdóttir

Þrefalt húrra fyrir Thelmu og hennar samstarfsfólki: „Húrra, húrra, húrra“.

 

Molecular Nutrition and Food Research

Skip to content