Forsíða » Endurhæfing » Fagþjónusta » Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfarar veita skjólstæðingum þjónustu sem miðar að því að bæta, viðhalda og endurhæfa hreyfifærni til aukinna lífsgæða. Þjónustan felur í sér mat, greiningu og meðferð líkamlegra einkenna, þjálfun og leiðsögn til sjálfshjálpar og vinnu við forvarnir gegn frekari heilsu bresti.  Verkefni sjúkraþjálfara eru fjölbreytt þar sem hreyfigeta líkamans, hreyfihegðun einstaklingsins og umhverfið sem sjúklingurinn hreyfir sig í er órjúfanleg heild. 
Markmið meðferðar sjúkraþjálfara getur verið að auka líkamsvitund, draga úr álagi á liði og vöðva, minnka verki, auka styrk og úthald, draga úr byltuhættu, viðhalda liðleika og mýkt vöðva svo eitthvað sé nefnt.  Meðferðin er bæði á einstaklingsgrunni í almennum og sértækum hópum (sjá hópa á heimasíðu) auk viðtækrar fræðslu.
Skip to content