Við viljum heyra þína rödd
Reykjalundur lætur upplifun skjólstæðinga sig miklu varða. Upplifun á þjónustunni og ábendingar eru okkur dýrmætar til að styðja við umbætur og til að veita góða þjónustu til framtíðar.
Þjónustukönnun
Könnun á upplifun á þjónustu Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar er framkvæmd allt árið um kring við útskrift á Skráningarmiðstöð.
Athygli er vakin á því að þér er hvorki skylt að svara spurningalistanum í heild né einstökum spurningum.
Könnunin er nafnlaus og allar niðurstöður eru settar fram á ópersónugreinanlegan hátt. Við framsetningu og úrvinnslu gagna verður þess gætt að ekki sé hægt að rekja svör til einstakra svarenda.
Ábendingar kvartanir og hrós til Reykjalundar
Ef þú vilt koma ábendingum á framfæri um starfsemina sem þú telur að þarfnast frekari athugunar eða viðbragða innan stofnunarinnar bendum við þér á ábendingarhnapp á heimasíðu Reykjalundar.
Ábending eða kvörtun til Embættis landlæknis
Notendur heilbrigðisþjónustu geta sent erindi eða kvörtun til Embættis landlæknis vegna heilbrigðisþjónustu. Sérfræðingar á sviði eftirlits og gæða fara yfir innsend erindi eða kvartanir og meta með tilliti til málsmeðferðar.
A. Erindi vegna heilbrigðisþjónustu: Embætti landlæknis er skylt að sinna erindum er varða samskipti almennings við veitendur heilbrigðisþjónustu og leiðbeina þeim um málefni heilbrigðisþjónustunnar samkvæmt 1. mgr. 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu.
B. Kvörtun vegna heilbrigðisþjónustu: Heimilt er að beina formlegri kvörtun til landlæknis vegna meintrar vanrækslu og mistaka við veitingu heilbrigðisþjónustu samkvæmt 12. gr. laga um kvörtun til landlæknis.
Embætti landlæknis ákveður hvort kvörtun gefi nægar ástæður til rannsóknar og hvort líklegt sé að niðurstöður rannsóknar geti leitt til aukinna gæða og aukins öryggis heilbrigðisþjónustu.
Mikilvægt er að rökstyðja í hverju mistök og/eða vanræksla felst með viðeigandi sjúkraskrárgögnum.
Kvörtun skal senda til embættis landlæknis án ástæðulauss dráttar. Séu meira en fjögur ár liðin frá því að þau atvik gerðust sem eru tilefni kvörtunar er rétt að vísa kvörtun frá nema sérstakar ástæður mæli með því að kvörtun sé tekin til meðferðar.
Embætti landlæknis upplýsir um framvindu og niðurstöður máls innan hæfilegs tíma.
C. Athugasemd vegna þjónustu og/eða framkomu heilbrigðisstarfsfólks á heilbrigðisstofnun: Notendur heilbrigðisþjónustu hafa rétt til þess að gera athugasemdir vegna þjónustu eða framkomu heilbrigðisstarfsfólks á heilbrigðisstofnun, starfsstofu heilbrigðisstarfsmanna eða annars staðar þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt samkvæmt 1. mgr. 28. gr. laga um réttindi sjúklinga. Slík erindi á að senda til yfirstjórnar viðkomandi stofnunar eða starfsstofu sem er skylt að svara skriflega sem fyrst.
Berist embætti landlæknis athugasemdir við þjónustu mun erindið vera sent til yfirstjórnar viðkomandi stofnunar eða starfstofu til meðferðar og afgreiðslu.
Nánar um athugasemdir og kvartanir vegna heilbrigðisþjónustu og eyðublöð má finna hér: https://island.is/kvortun-til-landlaeknis
