Hjarta og lungnarannsókn
Ýmis konar álagspróf, öndunarmælingar og svefnskimanir eru megin viðfangsefni hjarta- og lungnarannsóknarstofunnar. Að auki sinnir stofan ýmsum öðrum mælingum svo sem sólarhringsblóðþrýstingsmælingum, hjartaholter rannsóknum og hjartaómunum.
Undirbúningur fyrir mælingar á HL-rannsókn:
Undirbúningur fyrir þolpróf:
- Taka morgunlyfin tímanlega fyrir prófið
- Borða léttan morgunverð/hádegisverð en sleppa öllum koffeindrykkjum s.s. kaffi, te eða orku/gos drykkjum sem innihalda koffein
- Vera í íþróttaskóm (eða sambærilegu) og í þægilegum buxum. Karlmenn prófast berir að ofan og konur í íþróttatoppi eða brjóstarhaldara v. tengingu við hjartalínurit
- Sleppa allri líkamlegri áreynslu fyrir prófið s.s. göngu, leikfimi eða annarri þrekþjálfun
Undirbúningur fyrir öndunarmælingu
- Taktu lyfin þín að venju og úðalyfin a.m.k. einni klst fyrir mælingu nema annað sé tekið fram við boðun
- Borðaðu léttan morgunverð/hádegisverð fyrir mælingu
Undirbúningur fyrir sex mín göngupróf
- Taktu lyfin eins og venjulega og úðalyf a.m.k. einni klst fyrir prófið
- Borða léttan morgunverð/hádegisverð en sleppa öllum koffeindrykkjum s.s. kaffi, te eða orku/gos drykkjum sem innihalda koffein
- Sleppa allri líkamlegri áreynslu fyrir prófið s.s. göngu, leikfimi eða annarri þrekþjálfun
- Vera í skóm sem þú ert vanur/vön að ganga í
