Forsíða » Vísindi og kennsla » Rannsóknaverkefni í vinnslu » Viðtalsrannsókn um svefnleysi og verkjum sem trufla svefn

Viðtalsrannsókn um reynslu fólks af svefnleysi og verkjum sem trufla svefn

 

Ábyrgðarmaður: Dr. Erna S. Arnardóttir, Dósent við verkfræði- og tölvunarfræðideildir Háskólans í Reykjavík (HR), forstöðumaður Svefnsetursins við HR, forseti Evrópska svefnfélagsins. Aðalrannsakandi: Aðalbjörg Albertsdóttir RN, M.Sc., doktorsnemi í svefnvísindum við verkfræðideild HR, leiddi stofnun Svefnskólans á Reykjalundi, stofnandi og formaður Fagdeildar svefnhjúkrunar.

Svefnvandi er algengt viðfangsefni í endurhæfingu og árið 2022 voru þau sem innskrifuðust á Reykjalund spurð hvort þau teldu sig hafa svefnvanda, yfir 70% svöruðu því játandi. Tvö af algengustu svefnvandamálunum, svefnleysi og verkir, eru oft til staðar samtímis og hafa bæði verið tengd við verri heilsu, skert lífsgæði og aukna fjárhagslega byrði fyrir einstaklinga og samfélög. Safngreiningar hafa leitt í ljós tengsl á milli verkja og svefnleysis en kalla eftir nánari rannsóknum á eðli þessa sambands.

Rannsóknarefnið er reynsla fólks af samþættum svefnvanda, þar sem verkir og svefnleysi trufla svefn þrisvar í viku eða oftar, í þrjá mánuði eða lengur. Þátttakendur: Fullorðnir alls staðar af landinu, með svefnleysi og stoðkerfisverki sem trufla svefn þrisvar í viku eða oftar, í þrjá mánuði eða lengur.  Meginmarkmið rannsóknarinnar er að skilja og lýsa samþættum svefnvanda svefnleysis og verkja (verkjasvefnleysi) frá sjónarhóli fullorðinna sem hafa reynslu af þessum tiltekna samþætta svefnvanda. Auk þess verður reynsla þátttakenda af meðferðum við svefnvandanum rannsökuð.

Rannsóknaraðferð:
Þetta er eigindleg rannsókn með fyrirbærafræðilegri aðferð Vancouver skólans og opnum viðtölum. Tekin verða eitt til þrjú viðtöl við hvern þátttakenda. Vísindalegt gildi: Rannsóknin mun auka skilning og þekkingu á verkjasvefnleysi frá
sjónarhóli þeirra sem hafa reynslu af vandanum og hefur þannig mikla möguleika á að stuðla að aukinni vitund um fyrirbærið og bættri meðferð fyrir fólk með verkjasvefnleysi. Upphaf rannsóknar: 2025 Leyfi Vísindasiðanefndar: VSN2501010

Skip to content