Fréttir : Forsíða » Andlát í Reykjalundarfjölskyldunni

Ágæta samstarfsfólk,

Í dag er flaggað í hálfa stöng hér á Reykjalundi vegna útfarar Guðrúnar Bjargar Sigurbjörnsdóttur, formanns stjórnar Reykjalundar endurhæfingar ehf., en hún verður jarðsett í dag.

Í Morgunblaðinu í dag birtist stutt minningargrein sem undirritaður skrifaði fyrir hönd okkar starfsfólks.

Það voru mjög erfiðar fréttir sem bárust nýlega inn í Reykjalundarlífið um sviplegt andlát Guðrúnar Bjargar Sigurbjörnsdóttur. Guðrún Björg kom inn í Reykjalundarfjölskylduna síðasta sumar þegar hún tók að sé formennsku í stjórn Reykjalundar endurhæfingar ehf. Hún fetaði þar í fótspor Önnu Stefánsdóttur sem hafði áður verið formaður í fjögur ár. Guðrún Björg kom strax inn í starfið af áhuga og krafti. Það kom fljótt í ljós að hún hafði mikla þekkingu á heilbrigðiskerfinu og gríðargott innsæi varðandi stjórnun og skipulag reksturs heilbrigðisstarfsemi auk ýmissa annarra þátta sem mikilvæg eru starfsemi Reykjalundar. Reykjalundur fagnar einmitt 80 ára afmæli á þessu ári og þar var hún mjög áhugasöm um fjölda mála.

Þó það taki auðvitað tíma að kynnast og setja sig inn í jafn flókna og viðamikla starfsemi og fram fer á Reykjalundi setti Guðrún Björg sannarlega mark sitt á starfið og skipulagið þá mánuði sem við fengum að njóta krafta hennar og samveru.

Það voru heiður og forréttindi að fá að kynnast Guðrúnu Björgu og starfa með henni. Sá tími hefði mjög gjarnan mátt vera lengri því mörg verkefni voru í deiglunni og margt að gerast. Reykjalundur er sannarlega fátækari við brottfall Guðrúnar Bjargar en minningar og mörg verk lifa eftir.

Fyrir hönd starfsfólks Reykjalundar vil ég votta fjölskyldu Guðrúnar Bjargar, ættingjum og vinum okkar dýpstu samúð.

Blessuð sé minning Guðrúnar Bjargar.

Fyrir hönd starfsfólks Reykjalundar,
Pétur Magnússon
Forstjóri

 

Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir

Skip to content