Iðjuþjálfun
Iðjuþjálfar meta og greina færni einstaklings við framkvæmd iðju. Markmið iðjuþjálfunar er að auka færni, sjálfstæði og þátttöku í iðju sem hefur gildi og er mikilvæg.
Iðjuþjálfar efla færni með þjálfun, ráðgjöf, aðlögun og fræðslu og standa fyrir fjölbreyttri einstaklings-og/eða hópameðferð.
Meðferð sem iðjuþjálfar sinna: verkjaskóli, námskeið um jafnvægi í daglegu lífi, fræðsla um temprun, liðvernd, orkusparnað og vinnuhagræðingu, slökun, markmiðssetningu og skipulagningu á daglegri iðju, handæfingar, þjálfun í daglegum athöfnum í eigin umsjá, í eldhúsi og á verkstæði iðjuþjálfunar, mat á aksturshæfni, heimilis- og vinnustaðaathugun, tengja einstaklinga inn í úrræði út í samfélaginu, þjálfun á styrk, liðleika og skynjun, ráðgjöf varðandi hjálpartæki og aðlögun umhverfis.
