Forsíða » Persónuvernd

Persónuvernd

Vinnsla persónuupplýsinga er óhjákvæmilegur þáttur af starfsemi Reykjalundar og leggur stofnunin áherslu á að vernda upplýsingarnar með tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum. Reykjalundur leggur áherslu á að tryggja að öll meðferð per­sónu­upp­lýs­inga sé í sam­ræmi við ákvæði laga um per­sónu­vernd og meðferð per­sónu­upp­lýs­inga nr. 90/2018 og lögum um sjúkraskrá nr. 55/2009.

Persónuverndarstefna Reykjalundar endurhæfing ehf

Persónuupplýsingar og meðferð þeirra

Þær persónuupplýsingar sem skráðar eru á Reykjalundi hafa allar lagalegan eða þjónustulegan tilgang. 

Persónuupplýsingar sem við söfnum í starfseminni skulu vera:

  • Löglegar, sanngjarnar og réttar
  • Meðhöndlaðar af trúnaði og tryggðar gegn óheimilum breytingum
  • Vera skráðar í sérstökum, löglegum tilgangi og ekki síðar notaðar í öðrum óskyldum tilgangi
  • Vistaðar eins lengi og þörf er á og lög gera kröfur um
  • Vera uppfærðar og aðgengilegar
  • Persónuupplýsingar séu aðeins notaðar í upprunalegum tilgangi og eru ekki afhentar öðrum nema að beiðni hlutaðeigandi, með ótvíræðu samþykki hans eða okkur beri lagaleg skylda til.
Hver er þinn réttur
  • Þú hefur rétt til að þess að fá allar þær persónulegu upplýsingar sem um þig eru skráðar hvort sem upplýsingarnar eru á rafrænu eða pappírsformi, hvaðan upplýsingarnar komi og til hvers þær eru notaðar. 
    • Beiðni um upplýsingar, aðrar en upplýsingar úr sjúkraskrá, skal send til persónuverndarfulltrúa Reykjalundar gunnhildur@samtok.is
    • Beiðni um aðgang að eigin sjúkraskrá skal send til umsjónaraðila sjúkraskrár Reykjalundar hgf@reykjaundur.is
  • Þú hefur rétt til þess að krefjast þess að rangar eða ófullkomnar skráningar verði leiðréttar. 
  • Þú getur farið fram á að ónauðsynlegum upplýsingum um þig verði eytt nema okkur beri skylda til að varðveita upplýsingarnar samkvæmt lögum og eyðing upplýsinganna á einhvern hátt brjóti á rétti annarrar persónu um persónuvernd
  • Synjunum um leiðréttingar á skráningum í sjúkraskrá má skjóta til Embættis landlæknis með kæru.
Persónuverndarfulltrúi
  • Hjá Reykjalundi er starfandi persónuverndarfulltrúi sem tekur á mótir beiðnum um upplýsingar um persónuverndarmál og er tengiliður við Persónuvernd. Persónuverndarfulltrúi Reykjalundar er Gunnhildur Erla Kristjánsdóttir með netfangið gunnhildur@samtok.is
Eftirlit
  • Persónuvernd annast eftirlit með framkvæmd laga um persónuvernd, reglugerða og sérákvæða í lögum sem fjalla um vinnslu persónuupplýsinga. Sérhver skráður einstaklingur eða fulltrúi hans hefur rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef hann telur að vinnsla persónuupplýsinga um hann brjóti í báta við lög eða reglugerðir. Frekar upplýsinga um persónuvernd er að finna á vef stofnunarinnar personuvernd.is
Rafræn vöktun á Reykjalundi
  • Í Persónuverndarstefna RL kemur fram að myndefni úr eftirlitsmyndavélum í móttöku og sundlaug er varðveitt í 30 daga. Aðgangur að myndefni er takmarkaður og afhending til lögreglu eða tryggingafélaga er aðeins heimil við sérstakar aðstæður.
Skip to content