Forsíða » Endurhæfing » Þáttaka sjúklings í eigin meðferð

Þáttaka sjúklings í eigin meðferð

Þátttaka í eigin meðferð er lykilþáttur í að stuðla að árangri í endurhæfingu. Endurhæfing er í eðli sínu samvinna sjúklings, nánustu fjölskyldu og meðferðaraðila. Endurgjöf skiptir miklu máli og stundum er þörf á að endurskoða meðferðaráætlun eða breyta áherslum. Virk þátttaka í meðferð stuðlar einnig að bættu öryggi. Þér er því frjálst að spyrja út í lyfjagjafir, hvort starfsmaður hafi þvegið sér um hendur áður en hann sinnir þér og svo mætti áfram telja. 

Skip to content