Endurhæfing

Á Reykjalundi er endurhæfing einstaklingsmiðuð og byggir á þverfaglegri teymisvinnu. Markmiðið er að styðja fólk til aukinnar færni, sjálfstæðis og þátttöku í daglegu lífi. 

Hagnýtar upplýsingar

Við viljum að þér líði vel hjá okkur. Hér finnur þú allt sem gott er að vita áður en þú kemur – afgreiðslutíma, samgöngur, gistingu og aðra þjónustu.
 

VERUM ÖLL HOLLVINIR REYKJALUNDAR

Reykjalundur er ein mikilvægasta endurhæfingarstofnun landsins og órjúfanlegur hlekkur í heilbrigðisþjónustu. Á Reykjalundi njóta árlega á annað þúsund manns, af öllu landinu, endurhæfingar.

SAGA REYKJALUNDAR

Haustið 2025 kom út bókin Saga Reykjalundar sem fjallar í máli og myndum um tilurð og starfsemi þessarar merku stofnunar allt frá tímum berklana og fram á okkar daga.  

HANDBÓK UM HUGRÆNA ATFERLISMEÐFERÐ

HAM er meðferðar- og sjálfshjálparhandbók, skrifuð með það fyrir augum að hún nýtist sem leiðarvísir í meðferð við þunglyndi. Hún hefur einnig verið höfð til hliðsjónar við meðferð kvíða og annarra geðraskana og hefur þá verið aðlöguð að þörfum hvers og eins.

Föstudagsmolar

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi, Þá er þessi vika að klárast og hér koma föstudagsmolar vikunnar. Í dag er Dr. Marta Guðjónsdóttir rannsóknastjóri okkar gestahöfundur og ræðir um gervigreind, langvinn einkenni covid og ekki síst Vísindadag Reykjalundar sem er í næstu viku. Hvet ykkur til...

Föstudagsmolar

Föstudagsmolar forstjóra 31. október 2025.

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi. Hrekkjavökugleði – Þakkir til starfsmannafélagsins og ykkar allra! Ég vil byrja á að þakka ykkur kærlega fyrir síðast á Hrekkjavökkuhátíðinni í gær. Fyrir þá sem ekki vita var í gærkvöldi félagsheimilið Hlégarður hér í Mosfellsbænum undirlagt...

Fræðsla

Þverfagleg eða fjölfagleg þjónusta – hver er munurinn?

Á dögunum hélt Rúnar Helgi Andrason fræðsluerindi hér á Reykjalundi undir yfirskriftinni „Þverfagleg eða fjölfagleg þjónusta – hver er munurinn?“ Í erindinu fjallaði Rúnar Helgi um einkenni og áhrif þessara tveggja nálgana á samstarf fagstétta innan heilbrigðisþjónustu, hvernig þau birtast í...

Skip to content