Fréttir : Forsíða » Heilsan okkar

Föstudaginn 30. janúar fór fram fyrsti fundur ársins í fundaröðinni Heilsan okkar. Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hversmánaðar.
Markmið fundarins í þetta sinn var að veita yfirsýn yfir stöðu vísindalegrar þekkingar tengt meðferð offitu hjá fullorðnum.

Hlekkur á upptöku á streymi frá fundinum: hér

Dagskrá:

  • Erla Gerður Sveinsdóttir, heimilislæknir og lýðheilsufræðingur – Meðferð offitu í heilsugæslu
  • Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir, yfirlæknir á Reykjalundi – Sérhæfð meðferð við offitu
  • Bjarni Geir Viðarsson, sérfræðilæknir í skurðlækningum efra kviðarhols – Efnaskiptaaðgerðir á Íslandi
  • Sólveig Óskarsdóttir, lyfjafræðingur hjá Lyfju – Þyngdarstjórnunarlyf – ávinningur, áhætta & ábyrg notkun
  • Dögg Guðmundsdóttir, klínískur næringarfræðingur – Að byggja um heilbrigt samband við mat í offitumeðferð
  • Guðlaug Ingvadóttir talsmaður einstaklinga sem lifa með offitu. Situr í stjórn SFO og er fulltrúi í sjúklingaráði ECPO – Þegar líffræði, umhverfi og kerfi mætast: líf með offitu
Skip to content