Reykjalundur hefur um árabil sinnt heildstæðri endurhæfingu fyrir fólk með langvinna lungnasjúkdóma og aðra sjúklingahópa, með áherslu á þverfaglega teymismeðferð sem eykur færni, lífsgæði og sjálfstæði í daglegu lífi. Lungnaendurhæfing er þar einn lykilþáttur, þar sem meðferð og fræðsla styrkja einstaklinga til að takast á við lungnasjúkdóma með auknu öndunarþoli og betri líðan.
Í útgáfu fréttablaðsins Lungu er að finna fjölbreytt efni, fræðslugreinar, reynslusögur og upplýsingar um nýjustu rannsóknir. Í blaðinu er grein eftir Guðrúnu Nínu Óskarsdóttur, formann Félags íslenskra lungnalækna og yfirlækni á lungnasviði Reykjalundar og Jónínu Sigurgeirsdóttur, formann Fagdeildar lungnahjúkrunar og sérfræðing í endurhæfingarhjúkrun á lungnasviði Reykjalundar. Einnig er viðtal við Berg Heimi Bergsson, íþróttafræðing á Reykjalundi Endurhæfingarstofnun ásamt örðum áhugaverðum greinum.
Blaði má lesa í heild sinni hér



