Fréttir : Forsíða » Andlát: Pétur Bjarnason

Pétur Bjarnason, Mosfellingur, fv. fræðslustjóri og varaþingmaður, lést 30. janúar síðastliðinn, 84 ára að aldri.
Pétur ritaði merka sögu Reykjalundar í 80 ár sem kom út í árslok 2025. Bókin er yfirgripsmikið rit um hið mikla og góða starf sem unnið hefur verið á Reykjalundi í margar kynslóðir.
Reykjalundur sendir fjölskyldu og aðstandendum Péturs Bjarnasonar innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls hans og þakkar velvild og hlýhug í garð Reykjalundar í gegnum árin.
Guð blessi minningu Péturs.
Mbl-Andlát: Pétur Bjarnason

 

Skip to content