Forsíða » Um Reykjarlund » Fréttir

Föstudagsmolar forstjóra 12. september 2025.

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,   Þetta er svo mikið í okkar eigin höndum. Á starfsmannafundinum okkar í vikunni ræddi ég aðeins um mikilvægi þess að það sé skemmtilegt í vinnunni. Þar á ég ekki við að í gangi sé stöðug skemmtidagskrá heldur frekar að...

Heimsókn frá Lungnadeild Landspítalans.

Í dag kom hingað í heimsókn hress hópur frá Lungnadeild Landspítala (A6). Tilgangurinn var að kynnast starfsemi Reykjalundar. Eftir kynningu á Reykjalundi frá Pétri forstjóra sagði Eyþór yfirlæknir lungnateymis frá starfsemi teymisins. Loks var hópnum boðið í...

Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar er í dag.

Í tilefni af alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar í dag, 8. september, senda sjúkraþjálfarar Reykjalundar öllu starfsfólki, sjúklingum, skjólstæðingum og öðrum velunnurum Reykjalundar kærar og heilsuríkar kveðjur. Dagurinn í ár er tileinkaður virkni og heilbrigðri öldrun...

Vefurinn Gott og einfalt kominn í loftið!

Nýr matarvefur SÍBS, Gott og einfalt https://gottogeinfalt.is sem unninn var í samstarfi við Krabbameinsfélagið og Embætti landlæknis með dyggri aðstoð Reykjalundar, er nú kominn í loftið. Vefurinn hefur þá sérstöðu að uppskriftir eru valdar með tilliti til opinberra...

Reykjalundur farinn í hundanna.

Þessa vikuna er bláum fánum flaggað á Reykjalundi vegna bæjarhátíðarinnar „Í túninu heima“ sem fram fer í þessari viku hér í Mosfellsbæ og nær hápunkti um helgina. Við erum í „bláa hverfinu“ og skreytum því í bláu. Í gær var helsta snerting Reykjalundar við...

Annasamt síðdegi á Hlein

Annasamt síðdegi á Hlein Góðviðrisdaginn 20. ágúst sl. var mikið um að vera á hjúkrunarsambýlinu Hlein, sem staðsett er á lóð Reykjalundar. Á Hlein búa einstaklingar sem hafa fatlast mikið af völdum sjúkdóma eða slysa. Heimilið er í eigu SÍBS og er með rekstrarsamning...

Skip to content