Fréttir : Forsíða » Heimsókn úr Hafnarfirðinum.

Við hér á Reykjalundi fáum oft til okkar góða gesti sem vilja fræðast um starfsemina. Stundum ferst nú fyrir að segja frá því en ekki alltaf.

Síðasta föstudag var hér hjá okkur fjörugur hópur úr sjúkraþjálfunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði. Þau fengu kynningu á starfsemi Reykjalundar og skoðuðu húsakynni iðjuþjálfunar- og sjúkraþjálfun, iþróttahús og sundlaug auk Hjarta- og lungnarannsóknar. Ásamt því að eiga gott samtal og spjall í lokin við fulltrúa Reykjalundar.

Hér er mynd af þessum fjöruga hóp sem hélt svo á Selfoss eftir heimsóknina til okkar.

Þökkum gestunum úr Hafnarfirði kærlega fyrir komuna.

Skip to content