Hagnýtar upplýsingar

Við viljum að þér líði vel hjá okkur. Hér finnur þú allt sem gott er að vita áður en þú kemur – afgreiðslutíma, samgöngur, gistingu og aðra þjónustu.
 

Endurhæfing

Á Reykjalundi er endurhæfing einstaklingsmiðuð og byggir á þverfaglegri teymisvinnu. Markmiðið er að styðja fólk til aukinnar færni, sjálfstæðis og þátttöku í daglegu lífi.

Prjónum saman fyrir árangur!

Prjónauppskriftin – Árangur stendur fyrir samstöðu og stuðning við fólk í endurhæfingu á Reykjalundi.

Allur ágóði af sölu uppskriftarinnar rennur til Hollvina Reykjalundar. Með kaupum á uppskriftinni styður þú mikilvægt starf og færð um leið fallega peysu á prjónana.

VERUM ÖLL HOLLVINIR REYKJALUNDAR

Reykjalundur er ein mikilvægasta endurhæfingarstofnun landsins og órjúfanlegur hlekkur í heilbrigðisþjónustu. Á Reykjalundi njóta árlega á annað þúsund manns, af öllu landinu, endurhæfingar.

SAGA REYKJALUNDAR

Haustið 2025 kom út bókin Saga Reykjalundar sem fjallar í máli og myndum um tilurð og starfsemi þessarar merku stofnunar allt frá tímum berklana og fram á okkar daga.  

HANDBÓK UM HUGRÆNA ATFERLISMEÐFERÐ

HAM er meðferðar- og sjálfshjálparhandbók, skrifuð með það fyrir augum að hún nýtist sem leiðarvísir í meðferð við þunglyndi. Hún hefur einnig verið höfð til hliðsjónar við meðferð kvíða og annarra geðraskana og hefur þá verið aðlöguð að þörfum hvers og eins.

FræðslaReykjalundur

Svengdarvitund

Í undirbúningi jólanna getur álagið orðið mikið og tíminn naumur. Þá gleymist oft að hlusta á líkama okkar og eigin þarfir. Í Fróðleysu var Gunnar Örn Ingólfsson, sálfræðingur, með fræðslu um svengdarvitund. Svengdarvitund er aðferð til að þjálfa meðvitund á merkjum líkamans um svengd og seddu....

Föstudagsmolar

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi, Þá er þessi vika að klárast og hér koma föstudagsmolar vikunnar. Í dag er Dr. Marta Guðjónsdóttir rannsóknastjóri okkar gestahöfundur og ræðir um gervigreind, langvinn einkenni covid og ekki síst Vísindadag Reykjalundar sem er í næstu viku. Hvet ykkur til að...

Skip to content