Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,
Þá er þessi vika að klárast og hér koma föstudagsmolar vikunnar. Í dag er Dr. Marta Guðjónsdóttir rannsóknastjóri okkar gestahöfundur og ræðir um gervigreind, langvinn einkenni covid og ekki síst Vísindadag Reykjalundar sem er í næstu viku. Hvet ykkur til að lesa og vonandi geta sem allra flestir tekið eitthvað þátt í vísindadeginum sjálfum. Auk dagskrár Vísindagssins sem fylgir með, er einnig mynd frá Vísindadeginum okkar í fyrra. Á henni eru frá vinstri Sóley Guðrún Þráinsdóttir fráfarandi formaður vísindaráðs, Marta rannsóknastjóri og Kristín Hómgeirsdóttir sjúkraþjálfari sem hefur verið formaður vísindaráðsins okkar þetta árið.
Sjáumst á Vísindadeginum í næstu viku.
Njótið helgarinnar!
Bestu kveðjur,
Pétur
*****
Föstudagsmolar 7. nóvember 2025 – Frá rannsóknastjóra.
Gervigreind.
„Tíminn líður hratt á gervihnatta öld“ sungu fyrstu íslensku þátttakendurnir í Eurovision um árið. Nú eru allir hættir að hugsa um gervihnetti en eru því uppteknari af gervigreind sem sífellt verður aðgengilegri. En gervigreindin hefur margar hliðar. Rétt notuð er hún er afar nytsamlegt verkfæri en skuggahliðin er misnotkun á getu hennar, til dæmis við myndafölsun. Ég er ein af fjölmörgum aðdáendum David Attenboroughs og náttúrulífsmynda hans. Hann opnaði heima sem ég hefði aldrei séð eða kynnst annars. En nú hefur gervigreindin gert það að verkum að man getur aldrei verið viss hvort myndir eða myndskeið af undrum náttúrunnar séu raunveruleg eða „allt í plati“. Eitthvað virðist þó vera byrjað að setja því mörk hvað hægt sé að falsa. Ég bað ChatGPT um að breyta mynd af mér þannig að ég væri í „splitt“ eins og fimleikastjarna. En það fannst tólinu greinilega fulllangt gengið og sagði að það „…bryti í bága við stefnu þeirra í myndvinnslu“. Ég skil það vel (ég er sú stirðasta í bænum) og er í hjarta mínu glöð að eitthvað sé farið að sporna við þessu. Það sem ég hef nefnt hér á undan er tiltölulega saklaust en það eru ekki allar falsanir þannig.
Heilsan okkar – langvinn einkenni covid.
Á dögunum var fundur í fundarröðinni Heilsan okkar sem Háskóli Íslands og Landspítalinn standa sameiginlega að. Að þessu sinni var viðfangsefnið langvinn einkenni Covid og var markmið fundarins að veita heildstæða yfirsýn frá mörgum sjónarhornum. Reykjalundur lagði til eitt sjónarhornið þar sem Karl Kristjánsson læknir kynnti niðurstöður rannsóknar á árangri endurhæfingar hjá 115 einstaklingum með langvinn einkenni Covid. Reykjalundarfólk þekkir vel að skoða hlutina frá mörgum sjónarhornum því í þeim hópi er fagfólk með mjög fjölbreytta fagþekkingu. Við erum stolt af framlagi okkar til þekkingar á þessu mikilvæga viðfangsefni en okkar rannsókn sýnir að vel ígrunduð endurhæfing þar sem fagmennska er í fyrirrúmi bætir líðan og færni fólks með langvinn einkenni covid. Við vonum að með tímanum verði hægt að finna fjölbreyttar leiðir til að bæta stöðu þess stóra hóps fólks sem hefur lent í klónum á Covid, byggðar á vísindalegum rannsóknum og þekkingu.
Við eldri kynslóðin munum visku og reynslu mannsins sem var búinn að vera leigubílstjóri í 25 ár (Spaugstofan). Vísindadagurinn er ekki búinn að vera alveg svo lengi en nálgast það óðfluga. Nú er hann haldinn í 22. sinn og með mjög veglega dagskrá (sjá meðfylgjandi). Þar munu rannsakendur kynna niðurstöður sínar í stuttum erindum og er viðfangsefnið afar fjölbreytt að vanda. Verðlaun verða veitt fyrir besta erindið og Gunnar og hans fólk í eldhúsinu munu reiða fram léttar veitingar. Þeir sem ætla að koma á vísindadaginn í eigin persónu í Samkomusalinn á Reykjalundi eru beðnir að skrá sig hér: Skráningarlinkur. En svo verður einnig boðið upp á streymi fyrir þá sem eiga ekki heimangengt og verður slóðin sett á Facebook síðu Reykjalundar. Góðar stundir og munið að horfa til himins reglulega.
Dr. Marta Guðjónsdóttir, rannsóknarstjóri á Reykjalundi og dósent við Læknadeild Háskóla Íslands.


