Hagnýtar upplýsingar

Við viljum að þér líði vel hjá okkur. Hér finnur þú allt sem gott er að vita áður en þú kemur – afgreiðslutíma, samgöngur, gistingu og aðra þjónustu.
 

Endurhæfing

Á Reykjalundi er endurhæfing einstaklingsmiðuð og byggir á þverfaglegri teymisvinnu. Markmiðið er að styðja fólk til aukinnar færni, sjálfstæðis og þátttöku í daglegu lífi.

Prjónum saman fyrir árangur!

Prjónauppskriftin – Árangur stendur fyrir samstöðu og stuðning við fólk í endurhæfingu á Reykjalundi.

Allur ágóði af sölu uppskriftarinnar rennur til Hollvina Reykjalundar. Með kaupum á uppskriftinni styður þú mikilvægt starf og færð um leið fallega peysu á prjónana.

VERUM ÖLL HOLLVINIR REYKJALUNDAR

Reykjalundur er ein mikilvægasta endurhæfingarstofnun landsins og órjúfanlegur hlekkur í heilbrigðisþjónustu. Á Reykjalundi njóta árlega á annað þúsund manns, af öllu landinu, endurhæfingar.

SAGA REYKJALUNDAR

Haustið 2025 kom út bókin Saga Reykjalundar sem fjallar í máli og myndum um tilurð og starfsemi þessarar merku stofnunar allt frá tímum berklana og fram á okkar daga.  

HANDBÓK UM HUGRÆNA ATFERLISMEÐFERÐ

HAM er meðferðar- og sjálfshjálparhandbók, skrifuð með það fyrir augum að hún nýtist sem leiðarvísir í meðferð við þunglyndi. Hún hefur einnig verið höfð til hliðsjónar við meðferð kvíða og annarra geðraskana og hefur þá verið aðlöguð að þörfum hvers og eins.

HollvinirReykjalundur

Öflugur búnaður styrkir endurhæfingu á Reykjalundi

Nýr og öflugur tækjabúnaður styrkir endurhæfingu á Reykjalundi. Með stuðningi Hollvinasamtaka Reykjalundar hefur sjúkraþjálfun Reykjalundar fengið öflugan og fjölbreyttan tækjabúnað sem nýtist daglega í þrek-, þol- og styrkþjálfun sjúklinga í endurhæfingu. Þrekþjálfun er lykilþáttur í endurhæfingu...

Hollvinir

Fékk trú á að geta allt aftur eftir dvöl á Reykjalundi

Bárður Tryggvason, fasteignasali „Ég fékk aftur trú á sjálfan mig og á að ég gæti lifað góðu og virku lífi þrátt fyrir áfallið.“ Þann 16. ágúst 2024 var Bárður Tryggvason á utanhúsfótboltaæfingu hjá knattspyrnufélaginu Þrótti þegar hann hneig skyndilega niður. Félagar hans héldu í fyrstu að hann...

Reykjalundur

,,OG HVAÐ SVO?“

Samstarf og samfella í verkjaendurhæfingu á Íslandi Ráðstefnudagur Reykjalundar 2026, 9. mars 2026 á Grand Hotel   Það var ánægjulegt að sjá saman kominn hóp fólks úr ólíkum áttum heilbrigðis- og velferðarkerfisins sem á það sameiginlegt að vinna að einu af mikilvægari viðfangsefnum samtímans...

Skip to content