Fréttir : Forsíða » Öflugur búnaður styrkir endurhæfingu á Reykjalundi

Nýr og öflugur tækjabúnaður styrkir endurhæfingu á Reykjalundi.

Með stuðningi Hollvinasamtaka Reykjalundar hefur sjúkraþjálfun Reykjalundar fengið öflugan og fjölbreyttan tækjabúnað sem nýtist daglega í þrek-, þol- og styrkþjálfun sjúklinga í endurhæfingu. Þrekþjálfun er lykilþáttur í endurhæfingu einstaklinga á öllum getustigum og hefur jákvæð áhrif á líðan, færni og lífsgæði. Reglubundin þjálfun eykur jafnframt lífslíkur og styður við sjálfstæði og bata.

Fjölþjálfar og þrekhjól bæta aðstöðu sjúkraþjálfunar.

Sjúkraþjálfunardeild Reykjalundur fékk styrk fyrir þremur fjölþjálfum (NuStep) og fjórum þrekhjólum frá Fastus. Fjölþjálfinn, NuStep, hentar fólki á mjög breiðu getustigi, allt frá einstaklingum með miklar færniskerðingar upp í vel þjálfaða einstaklinga. Í tækið er þjálfað í sitjandi stöðu, auðvelt að komast að með hjálpartækjum og gerir kleift að hreyfa handleggi og fætur samtímis. Þjálfunin reynir þannig á hjarta, lungu, vöðva og liði á öruggan og áhrifaríkan hátt. Þrekhjólin fjögur, af E-Motion tegund, eru staðsett í hjólasal sjúkraþjálfunar og nýtast vel í endurhæfingu hjarta- og lungnasjúklinga sem stunda reglubundna hjólaþjálfun nokkrum sinnum í viku í sinni endurhæfingu.

 

Nýjung í sálfræðimeðferð: Neurofeedback tekið í notkun.

Sálfræðideild Reykjalundar hefur einnig, með stuðningi Hollvinasamtakanna, tekið í notkun neurofeedback-tæki til þjálfunar á heilavirkni. Neurofeedback er gagnreynd og hættulaus aðferð þar sem heilavirkni er mæld í rauntíma með EEG-rafskautum og skjólstæðingum veitt endurgjöf í formi myndefnis og/eða tónlistar. Þjálfunin ýtir undir sveigjanleika og aðlögunarhæfni heilans og styður við aukið innsæi gagnvart eigin líkamlegum einkennum, tilfinningum og hugarstarfi. Hún er notuð sem hluti af taugasálfræðilegri endurhæfingu, meðal annars við einkennum eftir heilahristingsheilkennis, streitu, áfallastreitu, svefntruflunum, athygliserfiðleikum og öðrum vitrænum erfiðleikum. Þetta er fyrsti neurofeedback búnaður af þessari gerð sem tekinn er í notkun á Íslandi og er Reykjalundur því brautryðjandi á þessu sviði hérlendis.

Heimsókn og nýjar gjafir til hreyfingar og þjálfunar.

Nýverið kom stjórn Hollvinasamtaka Reykjalundar og stjórnarmenn frá Kaupmannasamtökum Íslands, sem kostuðu þessar gjafir, í heimsókn til að kynna sér búnaðinn og sjá hvernig hann nýtist í daglegu starfi. Í sömu heimsókn voru Reykjalundi jafnframt færð að gjöf þrjú rafmagnshjól frá TRI, sem munu nýtast í þjálfun og hreyfingu skjólstæðinga.

Stuðningur sem skiptir sköpum fyrir árangursríka endurhæfingu.

Gjafir Hollvinasamtaka Reykjalundar og samstarfsaðila þeirra skipta miklu máli og styrkja enn frekar faglega, framsækna og árangursríka endurhæfingu á Reykjalundi.

Myndir frá heimsók

Skip to content