
VERUM ÖLL HOLLVINIR REYKJALUNDAR
Hollvinasamtök Reykjalundar eru mikilvægur bakhjarl í þágu endurhæfingar á Reykjalundi. Í samtökunum er fjöldi einstaklinga sem greiðir hóflegt árgjald í þágu starfseminnar.
Með því að gerast Hollvinur Reykjalundar leggur þú þitt af mörkum til að fleiri komist fyrr út í lífið á ný.
Ég undirritaður/undirrituð skrái mig hér með í Hollvinasamtök Reykjalundar og samþykki greiðslu á 7.000 kr. félagsgjaldi sem innheimt verður árlega.
Þeir sem vilja styrkja samtökin með frjálsum framlögun án þess að gerast félagar geta lagt inn á reikning 0357-22-1836, kennitalan er 601213-1760.
Fréttir frá hollvinasamtökunum
Gjöf frá Hollvinasamtökum Reykjalundar.
Efnaskipta- og offituteym Reykjalundar fékk nýverið veglega gjöf frá Hollvinasamtökum Reykjalundar sex nýja skrifborðsstóla frá Pennanum. Gjöfin kemur sér afar vel og bætir vinnuaðstöðu til muna. Við erum mjög þakklát fyrir stuðninginn. Gjafir af þessu tagi skipta...
TAKK – Reykjavíkurmaraþon 2025
Hjartans þakkir! Nokkrir frábærir hlauparar hlupu fyrir Reykjalund og Hollvinasamtökin okkar í Reykjavíkurmaraþoninu 2025. Við sendum þeim öllum hjartans þakkir sem og kærar þakkir til þeirra sem studdu þau með áheitum. Allt frá Hollvinasamtökum Reykjalundar fer...
Reykjavíkur maraþon Íslandsbanka
Vissir þú að með áheitum í hlaupinu í ár er markmiðið að safna fyrir lækningatækjum og betri aðbúnaði fyrir skjólstæðinga okkar. Ykkar framlag skiptir...
Reykjavíkurmaraþon 23. ágúst 2025
Hlaupið fyrir tilgang – ekki bara tímann Allir sem skrá sig í Reykjavíkurmaraþonið geta tekið þátt í áheitasöfnun. Á hlaupastyrkur.is má velja Reykjalund sem sitt góðgerðarfélag, sett upp eigin söfnunarsíðu og byrjað að safna fyrir málstað sem skiptir virkilega...
Mikilvægar gjafir frá Hollvinasamtökunum
Fulltrúar Hollvinasamtakanna heimsóttu Reykjalund nýverið og færðu henni mikilvægar gjafir til stuðnings starfseminni. Um er að ræða hjartastuðtæki, lífsmarkamæli og vökvadælu, sem munu nýtast vel í daglegu starfi og auka öryggi í þjónustu við sjúklinga. Þessar...
Stjórn Hollvinasamtaka Reykjalundar
- Júlíus Þór Jónsson formaður
- Örn Kjærnested
- Kolbrún G. Þorsteinsdóttir
- Erna Arnardóttir
- Bárður Hreinn Tryggvason
- Ásgeir Ásgeirsson, varamaður
- Magnús Már Leifsson, varamaður
Lög Hollvinasamtaka Reykjalundar (pdf)





