Hollvinir Reykjalundar munu standa fyrir, í samstarfi við sjónvarp RÚV, landssöfnun til styrktar starfsemi Reykjalundar endurhæfingar.
Tilgangurinn með söfnuninni er að afla fjár til að styðja við uppbyggingu á húsnæði Reykjalundar og þannig stuðla að því að sem flestir, sem á þurfa að halda, fái notið öflugrar endurhæfingar til betri lífsgæða. Söfnunarþátturinn fer í lofið 2. október n.k. og er undirbúningur þegar hafinn. Í síðustu viku mætti öflugt teymi sjónvarpsins á Reykjalund þar sem gerðar voru upptökur fyrir þáttinn. Því fylgdi nokkuð umstang en stemningin var þó afar góð og samstarfið einstaklega ánægjulegt, enda fagfólk á ferð.
Við hlökkum til áframhaldandi vinnu við undirbúining og ekki síst að sjá afraksturinn í haust þar sem landsmenn sameinast um að styðja við frekari uppbyggingu á Reykjalundi og það mikilvæga starf sem þar fer fram.





