
VERUM ÖLL HOLLVINIR REYKJALUNDAR
Hollvinasamtök Reykjalundar eru mikilvægur bakhjarl í þágu endurhæfingar á Reykjalundi. Í samtökunum er fjöldi einstaklinga sem greiðir hóflegt árgjald í þágu starfseminnar.
Með því að gerast Hollvinur Reykjalundar leggur þú þitt af mörkum til að fleiri komist fyrr út í lífið á ný.
Ég undirritaður/undirrituð skrái mig hér með í Hollvinasamtök Reykjalundar og samþykki greiðslu á 7.000 kr. félagsgjaldi sem innheimt verður árlega.
Þeir sem vilja styrkja samtökin með frjálsum framlögun án þess að gerast félagar geta lagt inn á reikning 0357-22-1836, kennitalan er 601213-1760.
Fréttir frá hollvinasamtökunum
Landssöfnun Hollvina Reykjalundar er hafin!
Nú er komið að því að leggja góðu málefni lið. Hægt er að styrkja söfnunina með því að hringja í eftirfarandi söfnunarnúmer: 📞 Aðalnúmer í þjónustuveri: 448 8000 📞 903 7103 – 3.000 kr. 📞 903 7105 – 5.000 kr. 📞 903 7110 – 10.000 kr. Hvert framlag skiptir máli og styður...
,,Hvernig slær hjartað þitt”
Í þættinum Segðu mér frá 1. október ræðir Sigurlaug M. Jónasdóttir við Rögnvald Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjón. Í samtalinu kemur hann inn á eigin reynslu og talar af hlýju og einlægni um Reykjalund, mikilvægi endurhæfingar og það hvernig hún getur skipt sköpum í...
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hvetur landsmenn til að styðja Reykjalund
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Hilmar Gunnarsson, lýsir sterkri tengingu Reykjalundar við Mosfellsbæ í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Jafnframt heimsótti hann Reykjalund í vikunni og deildi hugleiðingum sínum um mikilvægi starfseminnar og komandi landssöfnun...
Reykjalundur þarfnast endurhæfingar – frétt á RÚV
RÚV fjallaði nýverið um stöðu húsakosts Reykjalundar og þá brýnu þörf sem er á endurbótum til að tryggja áfram öfluga endurhæfingarþjónustu fyrir landsmenn. Í fréttinni er farið yfir mikilvægi starfseminnar og hvers vegna nauðsynlegt er að ráðast í framkvæmdir á...
Grein forstjóra Reykjalundar á Vísi: Endurhæfum Reykjalund
Í skoðanagrein á Vísi fjallar Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Reykjalundar, um mikilvægi Reykjalundar fyrir íslenskt samfélag og þá brýnu þörf sem nú er á endurbótum á húsnæði stofnunarinnar. Greinin er skrifuð í aðdraganda landssöfnunar Hollvina...
Stjórn Hollvinasamtaka Reykjalundar
- Júlíus Þór Jónsson formaður
- Örn Kjærnested
- Kolbrún G. Þorsteinsdóttir
- Erna Arnardóttir
- Bárður Hreinn Tryggvason
- Ásgeir Ásgeirsson, varamaður
- Magnús Már Leifsson, varamaður
Lög Hollvinasamtaka Reykjalundar (pdf)





