Í þættinum Segðu mér frá 1. október ræðir Sigurlaug M. Jónasdóttir við Rögnvald Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjón. Í samtalinu kemur hann inn á eigin reynslu og talar af hlýju og einlægni um Reykjalund, mikilvægi endurhæfingar og það hvernig hún getur skipt sköpum í lífi fólks.
Þátturinn er bæði áhugaverður og umhugsunarverður og gefur góða innsýn í það mikilvæga hlutverk sem endurhæfing gegnir.
