Fréttir : Forsíða » Hollvinir Reykjalundar þakka þjóðinni

Stjórn Hollvina Reykjalundar, Júlíus Þór Jónsson formaður, Kolbrún G. Þorsteinsdóttir, Bárður Hreinn Tryggvason, Örn Kjærnested, Erna Arnardóttir

Stuðningur landsmanna við landssöfnunina Endurhæfum Reykjalund fór fram úr björtustu vonum. Í viðtali í Síðdegisútvarpi RÚV færir Júlíus Þór Jónsson, formaður Hollvina Reykjalundar, þjóðinni innilegar þakkir fyrir einstakan stuðning og samhug.

Einnig má lesa þakkargrein stjórnar Hollvina Reykjalundar þar sem farið er yfir þann frábæra árangur sem náðist og þakklæti fært öllum sem lögðu söfnuninni lið. Þar kemur fram að um 122 milljónir króna söfnuðust til að styðja við endurbætur á húsnæði endurhæfingadeildar á Reykjalundi.
Skip to content