Endurhæfing

Á Reykjalundi er endurhæfing einstaklingsmiðuð og byggir á þverfaglegri teymisvinnu. Markmiðið er að styðja fólk til aukinnar færni, sjálfstæðis og þátttöku í daglegu lífi. 

Hagnýtar upplýsingar

Við viljum að þér líði vel hjá okkur. Hér finnur þú allt sem gott er að vita áður en þú kemur – afgreiðslutíma, samgöngur, gistingu og aðra þjónustu.
 

VERUM ÖLL HOLLVINIR REYKJALUNDAR

Reykjalundur er ein mikilvægasta endurhæfingarstofnun landsins og órjúfanlegur hlekkur í heilbrigðisþjónustu. Á Reykjalundi njóta árlega á annað þúsund manns, af öllu landinu, endurhæfingar.

SAGA REYKJALUNDAR

Haustið 2025 kom út bókin Saga Reykjalundar sem fjallar í máli og myndum um tilurð og starfsemi þessarar merku stofnunar allt frá tímum berklana og fram á okkar daga.  

HANDBÓK UM HUGRÆNA ATFERLISMEÐFERÐ

HAM er meðferðar- og sjálfshjálparhandbók, skrifuð með það fyrir augum að hún nýtist sem leiðarvísir í meðferð við þunglyndi. Hún hefur einnig verið höfð til hliðsjónar við meðferð kvíða og annarra geðraskana og hefur þá verið aðlöguð að þörfum hvers og eins.

Hollvinir

Fartölvugjöf frá Hollvinum.

Hollvinasamtök Reykjalundar hafa fært Reykjalundi sex fartölvur að gjöf. Gjöfin kemur sér vel, enda er góður tækjabúnaður mikilvægur þáttur í nútíma heilbrigðisþjónustu. Fannar, forstöðumaður upplýsinga- og velferðartækni, kom tölvunum fljótt í notkun, meðal annars hjá sjúkraþjálfurum og...

Föstudagsmolar

Föstudagsmolar forstjóra 24. október 2025

Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi,   Kvennaverkfall í dag á 50 ára afmæli. Í dag hefur verið boðað kvennaverkfall þar sem mælst er til þess að konur og kvár þessa lands leggi niður ólaunuð og launuð störf og minni þannig á gríðarlegt mikilvægi framlags síns í samfélaginu. Í dag eru einmitt...

AlmenntReykjalundur

Bleiki dagurinn á Reykjalundi

Á Bleika deginum berum við Bleiku slaufuna, klæðumst bleiku og lýsum skammdegið upp í bleikum ljóma til að minna á að það er list að lifa með krabbameini. Við stöndum með öllum konum sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Bleiki dagurinn var haldinn hátíðlegur í gær hér á...

Skip to content