Fréttir : Forsíða » Rúv heimsækir Reykjalund

Fulltrúar frá Rúv komu í heimsókn á Reykjalund í vikunni til að undirbúa söfnunarþátt sem sýndur verður í haust á Ríkissjónvarpinu.  Hollvinasamtök Reykjalundar ákváðu að hrinda af stað þessari söfnun ásamt Reykjalundi og SÍBS. Markmið þáttarins er að styrkja mikilvægt endurhæfingarstarf Reykjalundar og kynna áhorfendum það fjölbreytta og öfluga starf sem þar fer fram dag hvern.

Heimsóknin hófst á kynningu hjá forstjóra Reykjalundar sem fór yfir sögu stofnunarinnar, helstu áherslur í starfi og framtíðarsýn. Þar kom fram hversu víðtæka þjónustu Reykjalundur veitir og hvernig endurhæfing í hæsta gæðaflokki skiptir sköpum fyrir þá fjölda einstaklinga sem sækja sér þjónustu hingað á hverju ári.

Að kynningunni lokinni var gengið um Reykjalund þar sem dagskrágerðarfólk Rúv fengu tækifæri til að skoða starfsemina nánar, hitta starfsfólk og kynnast þeirri aðstöðu sem notuð er í meðferð og þverfaglegri endurhæfingu.

Heimsóknin tókst afar vel og rík von er um að söfnunarþátturinn í haust verði til þess að efla vitund og stuðning almennings við það mikilvæga samfélagsstarf sem Reykjalundur stendur fyrir.

Skip to content