Þjónusta Reykjalundar hættir kl 14 í dag!
Lögreglan var að gefa út tilkynningu um að vegna áframhaldandi snjókomu á höfuðborgarsvæðinu er fólk eindregið hvatt til að halda sig heima og vera alls ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi í umdæminu, en hún mun breytast í appelsínugula viðvörun kl. 17, en...
Svana Helen er nýr formaður stjórnar Reykjalundar endurhæfingar ehf. og Kristján Þór nýr stjórnarmaður.
Aðalfundur Reykjalundar endurhæfingar ehf. fór fram nýlega. Honum var frestað síðasta vor að óviðráðanlegum orsökum. Svana Helen Björnsdóttir var kjörinn nýr formaður stjórnar Reykjalundar endurhæfingar ehf. Svana Helen er með PhD gráðu í kerfisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur...
Fartölvugjöf frá Hollvinum.
Hollvinasamtök Reykjalundar hafa fært Reykjalundi sex fartölvur að gjöf. Gjöfin kemur sér vel, enda er góður tækjabúnaður mikilvægur þáttur í nútíma heilbrigðisþjónustu. Fannar, forstöðumaður upplýsinga- og velferðartækni, kom tölvunum fljótt í notkun, meðal annars hjá sjúkraþjálfurum og...
Föstudagsmolar forstjóra 24. október 2025
Ágæta samstarfsfólk hér á Reykjalundi, Kvennaverkfall í dag á 50 ára afmæli. Í dag hefur verið boðað kvennaverkfall þar sem mælst er til þess að konur og kvár þessa lands leggi niður ólaunuð og launuð störf og minni þannig á gríðarlegt mikilvægi framlags síns í samfélaginu. Í dag eru einmitt...



