
Elfa Dröfn hjúkrunarfræðingur tekur á móti gjöfinni frá Pétri Hanssen. Mynd: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Fyrir rúmu ári síðan hóf Pétur Hanssen söfnun fyrir lungnasúrefnistækjum með því að útbúa barmmerki og selja. Með elju og þrautseigju seldi hann merki fyrir 3 milljónir á þessu einu ári og safnaði fyrir 6 tækjum. Oft plataði Pétur konu sína í skemmtilegan ísbíltúr en undirtónninn var að fara með merki á sölustaði.
Pétur nefnir að upphafshvatann að þessu öllu megi rekja til Elfu Drafnar Ingólfsdóttur, hjúkrunarfræðings á lungnadeild Reykjalundar, sem segja má að sé „sökudólgur“ þessa alls, að hans sögn. Elfa Dröfn hvatti hann til þess að fara á kynningarfund hjá Reykjalundi í upphafi sinnar meðferðar, þar sem hann komst að því að svona tæki kostar um 700.000 krónur. Þá kviknaði hugmyndin að safna sérstaklega fyrir slíkum tækjum.
Þróunin á lungnasúrefnistækjum hefur verið mikil, sérstaklega með tilkomu minni og fullkomnari tækja eins og Inogen ferðasúrefnistækjanna. Slík tæki ættu að vera við hvert rúm á lungnadeildum Reykjalundar, því þau spara vinnu starfsfólks og dregur úr þörf á sífelldum áfyllingum á súrefniskútum.
