Fréttir : Forsíða » Vinnuskóli Mosfellsbæjar leggur sitt af mörkum á Reykjalundi

Ungmenni úr Vinnuskóla Mosfellsbæjar hafa undanfarna daga unnið að því að fegra og snyrta umhverfi Reykjalundar. Þrátt fyrir rysjótt veður og blautan dag hafa þau sýnt einstakan dugnað, vinnugleði og jákvætt viðhorf.

Það er okkur á Reykjalundi mikil ánægja að hafa þetta kraftmikla unga fólk í kringum okkur. Nærvera þeirra og góði andinn sem þau færa með sér veita bæði gleði og líf í daglegt starf.

Reykjalundur er afar þakklátur Mosfellsbæ fyrir þetta mikilvæga framlag. Fallegt og vel hirt umhverfi skiptir miklu máli fyrir starfsfólk, skjólstæðinga og gesti, en svæðið er einnig vinsælt útivistarsvæði fyrir Mosfellinga. Í kringum Reykjalund liggja fjölmargar skemmtilegar gönguleiðir sem njóta mikilla vinsælda allt árið um kring.

Við kunnum vel að meta það góða samstarf sem Reykjalundur á við Mosfellsbæ og erum þakklát fyrir þann stuðning sem bæjarfélagið sýnir starfsemi okkar og nærumhverfi.

Við sendum Mosfellsbæ og starfsfólki Vinnuskóla Mosfellsbæjar bestu þakkir fyrir vel unnin störf.

Kátir krakkar frá Vinnuskóla Mosfellsbæjar

Skip to content