23. Vísindadagur Reykjalundar fór fram í gær, fimmtudaginn 19. nóvember. Á dagskrá voru sjö rannsóknarerindi sem endurspegluðu fjölbreytt rannsóknarstarf á sviði endurhæfingar og tengdra heilbrigðisvísinda.Kynntar voru niðurstöður rannsókna og rannsóknaverkefni á ýmsum stigum. Meðal viðfangsefna voru rannsóknir á langvinnum einkennum eftir COVID-19 og árangri endurhæfingar, áhrifum efnaskiptameðferða á þyngdarstjórnun og heilsu, endurhæfingu einstaklinga með vefjagigt og árangri hjartaendurhæfingar. Einnig var kynnt áætlun doktorsrannsóknar um samfellu og samræmi þjónustu við fólk með langvinna verki.
Að hverju rannsóknarerindi loknu gafst tími fyrir spurningar úr sal og sköpuðust góðar og gagnlegar umræður um rannsóknirnar, niðurstöður þeirra og möguleg áhrif á endurhæfingu og þjónustu. Í kaffihléinu gafst síðan gott tækifæri til að halda samtalinu áfram og skiptast á hugmyndum.
Vísindadagurinn er mikilvægur vettvangur til að kynna rannsóknir, miðla nýrri þekkingu og efla faglegt samtal um rannsóknarstarf og þróun endurhæfingar.
Sérstakar þakkir fær Dr. Jónína Sigurgeirsdóttir, sérfræðingur í endurhæfingarhjúkrun, fyrir að setja vísindadaginn og flytja lokaorð. Þá þökkum við Guðrúnu Nínu Óskarsdóttur, yfirlækni lungnasviðs Reykjalundar, fyrir góða fundarstjórn.
Við þökkum jafnframt öllum sem kynntu rannsóknir sínar og gestum dagsins fyrir þátttökuna og fyrir fróðlegar og góðar umræður.
Hér má sjá svipmyndir frá 23. vísindadegi Reykjalundar.












