
VERUM ÖLL HOLLVINIR REYKJALUNDAR
Hollvinasamtök Reykjalundar eru mikilvægur bakhjarl í þágu endurhæfingar á Reykjalundi. Í samtökunum er fjöldi einstaklinga sem greiðir hóflegt árgjald í þágu starfseminnar.
Með því að gerast Hollvinur Reykjalundar leggur þú þitt af mörkum til að fleiri komist fyrr út í lífið á ný.
Ég undirritaður/undirrituð skrái mig hér með í Hollvinasamtök Reykjalundar og samþykki greiðslu á 7.000 kr. félagsgjaldi sem innheimt verður árlega.
Þeir sem vilja styrkja samtökin með frjálsum framlögun án þess að gerast félagar geta lagt inn á reikning 0357-22-1836, kennitalan er 601213-1760.
Fréttir frá hollvinasamtökunum
Reykjalundur þarfnast endurhæfingar – frétt á RÚV
RÚV fjallaði nýverið um stöðu húsakosts Reykjalundar og þá brýnu þörf sem er á endurbótum til að tryggja áfram öfluga endurhæfingarþjónustu fyrir landsmenn. Í fréttinni er farið yfir mikilvægi starfseminnar og hvers vegna nauðsynlegt er að ráðast í framkvæmdir á...
Grein forstjóra Reykjalundar á Vísi: Endurhæfum Reykjalund
Í skoðanagrein á Vísi fjallar Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Reykjalundar, um mikilvægi Reykjalundar fyrir íslenskt samfélag og þá brýnu þörf sem nú er á endurbótum á húsnæði stofnunarinnar. Greinin er skrifuð í aðdraganda landssöfnunar Hollvina...
Viðhaldsskuld Reykjalundar í brennidepli
Árangursrík endurhæfing byggir ekki aðeins á öflugu fagfólki heldur einnig húsnæði sem stenst kröfur nútímans. Í meðfylgjandi grein Morgunblaðsins er fjallað um þá viðhaldsþörf sem blasir við á Reykjalundi og mikilvægi þeirrar landssöfnunar sem Hollvinir Reykjalundar...
Reykjalundur þarf á endurhæfingu að halda.
Undanfarið hefur RÚV fjallað um mikilvægt starf Reykjalundar og þær jákvæðu breytingar sem endurhæfing getur haft á líf fólks. Umfjöllunin tengist landssöfnun Hollvina Reykjalundar sem fram fer 2. október næstkomandi en markmið hennar er að safna fyrir endurbótum á...
Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund
Að Reykjalundi í Mosfellsbæ er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem þjónar þverskurði þjóðarinnar, byggir fólk upp svo það nái vopnum sínum eftir veikindi og sendir aftur út í lífið. En nú þarf Reykjalundur á endurhæfingu að halda, uppbyggingu sem þjóðin getur...





