
Björg Hákonardóttir, sviðsstjóri þjálfunar og Vignir Freyr Andersen, umsjónarmaður fasteinga í viðtali á Rás 2
Undanfarið hefur RÚV fjallað um mikilvægt starf Reykjalundar og þær jákvæðu breytingar sem endurhæfing getur haft á líf fólks.
Umfjöllunin tengist landssöfnun Hollvina Reykjalundar sem fram fer 2. október næstkomandi en markmið hennar er að safna fyrir endurbótum á sjúkraþjálfunargangi Reykjalundar.
Hollvinir Reykjalundar standa að söfnuninni ásamt Rúv og Sýn og vilja með henni stuðla að betri aðstöðu fyrir þá fjölmörgu einstaklinga sem sækja endurhæfingu á Reykjalundi. Hér að neðan má hlusta á viðtal í Morgunútvarpinu og lesa frétt RÚV um starfsemina og áhrif hennar á líf fólks.
Viðal: Fjársveltur Reykjalundur
