Hagnýtar upplýsingar

Við viljum að þér líði vel hjá okkur. Hér finnur þú allt sem gott er að vita áður en þú kemur – afgreiðslutíma, samgöngur, gistingu og aðra þjónustu.
 

Endurhæfing

Á Reykjalundi er endurhæfing einstaklingsmiðuð og byggir á þverfaglegri teymisvinnu. Markmiðið er að styðja fólk til aukinnar færni, sjálfstæðis og þátttöku í daglegu lífi.

Prjónum saman fyrir árangur!

Prjónauppskriftin – Árangur stendur fyrir samstöðu og stuðning við fólk í endurhæfingu á Reykjalundi.

Allur ágóði af sölu uppskriftarinnar rennur til Hollvina Reykjalundar. Með kaupum á uppskriftinni styður þú mikilvægt starf og færð um leið fallega peysu á prjónana.

VERUM ÖLL HOLLVINIR REYKJALUNDAR

Reykjalundur er ein mikilvægasta endurhæfingarstofnun landsins og órjúfanlegur hlekkur í heilbrigðisþjónustu. Á Reykjalundi njóta árlega á annað þúsund manns, af öllu landinu, endurhæfingar.

SAGA REYKJALUNDAR

Haustið 2025 kom út bókin Saga Reykjalundar sem fjallar í máli og myndum um tilurð og starfsemi þessarar merku stofnunar allt frá tímum berklana og fram á okkar daga.  

HANDBÓK UM HUGRÆNA ATFERLISMEÐFERÐ

HAM er meðferðar- og sjálfshjálparhandbók, skrifuð með það fyrir augum að hún nýtist sem leiðarvísir í meðferð við þunglyndi. Hún hefur einnig verið höfð til hliðsjónar við meðferð kvíða og annarra geðraskana og hefur þá verið aðlöguð að þörfum hvers og eins.

HollvinirReykjalundur

Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund

Að Reykjalundi í Mosfellsbæ er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem þjónar þverskurði þjóðarinnar, byggir fólk upp svo það nái vopnum sínum eftir veikindi og sendir aftur út í lífið. En nú þarf Reykjalundur á endurhæfingu að halda, uppbyggingu sem þjóðin getur stuðlað að. Húsakostur og nær...

Reykjalundur

Sundlaugin opnuð á ný eftir umfangsmiklar endurbætur

Nú hafa sundlaugarnar á Reykjalundi verið opnaðar á ný eftir umfangsmiklar endurbætur sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði. Framkvæmdirnar voru nauðsynlegur liður í viðhaldi og endurnýjun til að tryggja áfram opnun lauganna en jafnframt nauðsynlegur liður í því að skapa örugga og góða aðstöðu...

HollvinirReykjalundur

Að heita á Reykjalund í Reykjavíkurmaraþoninu

Reykjalundur tekur þátt í góðgerðarátaki Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka og nú gefst öllum tækifæri til að styðja starfið með því að heita á þá sem hlaupa fyrir Reykjalund. Framlög til Reykjalundar nýtast til verkefna sem stuðla að bættri aðstöðu og auknum lífsgæðum þeirra sem njóta þjónustu...

HollvinirReykjalundur

Sumarlokun á Reykjalundi

Dagana 13. júlí - 7. ágúst verður Reykjalundur lokaður vegna sumarleyfa. Starfsemi hefst að nýju mánudaginn 10. ágúst. Við óskum sjúklingum, starfsfólki og öðrum velunnurum Raykjalundar gleðilegs sumars og hlökkum til að taka á móti ykkur í ágúst.

Skip to content