Fréttir : Forsíða » Þverfagleg eða fjölfagleg þjónusta – hver er munurinn?

Á dögunum hélt Rúnar Helgi Andrason fræðsluerindi hér á Reykjalundi undir yfirskriftinni „Þverfagleg eða fjölfagleg þjónusta – hver er munurinn?“

Í erindinu fjallaði Rúnar Helgi um einkenni og áhrif þessara tveggja nálgana á samstarf fagstétta innan heilbrigðisþjónustu, hvernig þau birtast í heilbrigðisþjónustu og hvaða áhrif samvinna ólíkra fagstétta hefur á árangur meðferðar og þjónustu við einstaklinga í endurhæfingu.

Erindið vakti umræðu og áhuga meðal starfsmanna, enda mikilvægt að starfsfólk hafi sameiginlegan skilning á samvinnu og samhæfingu þjónustu innan teyma.

Við þökkum Rúnari kærlega fyrir fróðlegt og hvetjandi erindi.

Skip to content