Í tilefni Kjördæmaviku Alþingis, þegar hefðbundnir þingfundir liggja niðri og þingmenn heimsækja kjördæmi sín til að kynna sér málefni á vettvangi, tók Reykjalundur á móti þingmönnum úr Sjálfstæðisflokkurinn.
Þingmennirnir fengu kynningu á starfsemi Reykjalundar hjá Svönu Helen Björnsdóttur, forstjóra, þar sem farið var yfir helstu verkefni, þjónustu og hlutverk stofnunarinnar í endurhæfingu og heilsueflingu. Gestirnir sýndu starfseminni mikinn áhuga og fengu innsýn í mikilvægi hennar fyrir samfélagið í heild.
Sérstök áhersla var lögð á stöðu húsnæðismála og þær áskoranir sem þar blasa við. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar séu vel upplýstir um starfsemi og aðstæður Reykjalundar, enda skiptir góð samvinna og gagnkvæmur skilningur sköpum fyrir áframhaldandi uppbyggingu og þróun Reykjalundar.
Gestir:
Rósa Guðbjartsdóttir, Suðvesturkjördæmi
Guðlaugur Þór Þórðarson, Reykjavíkurkjördæmi norður
Diljá Mist Einarsdóttir, Reykjavíkurkjördæmi norður
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, Suðurkjördæmi
Jón Pétur Zimsen, Reykjavíkurkjördæmi suður
Bryndís Haraldsdóttir, 1. varaforseti, Suðvesturkjördæmi
Júlíus Viggó Ólafsson, Reykjavíkurkjördæmi norður
Tinna Eyvindsdóttir, Samband ungra sjálfstæðismanna
Reykjalundur þakkar þingmönnunum kærlega fyrir komuna og fyrir að gefa sér tíma til að kynna sér starfsemina á staðnum.

