Reykjalundur vill færa Oddfellow-stúku nr. 20, Baldri sínar innilegustu þakkir fyrir höfðinglega gjöf til Hollvinasamtaka Reykjalundar
Pétur Magnússon fyrrum forstjóri Reykjalundar var með erindi fyrir stúkuna um Reykjalund og jólaösina. Það er siður að ef fyrirlesari er ekki Oddfellowi má hann ánafna peningagjöf til líknarsamtaka. Pétur ánefndi gjöfina til Hollvinasamtaka Reykjalundar
Slíkur hlýhugur og stuðningur er afar mikils metinn og styrkir mikilvægt starf samtakanna við að efla og styðja við starfsemi Reykjalundar.
Við kunnum afar vel að meta þann hlýhug og stuðning sem gjöfin ber með sér og er okkur mikil hvatning í áframhaldandi starfi.
Hjartans þakkir til allra stúkubræðra í Baldri fyrir velvild og samhug.
