Fréttir : Forsíða » Rýmingaræfing á Reykjalundi gekk vel – þakkir til Leikfélagsins.
Í dag fór fram rýmingaræfing hér á Reykjalundi. Æfð var rýming húsnæðisins ef um kæmi neyðartilfelli eins og til dæmis eldsvoði.

Reglulega þarf að fara yfir öll öryggismál og æfa viðbrögð og var æfingin í dag liður í því. Framkvæmdin var í höndum Öryggisnefndar, öryggisfulltrúa og Neyðarstjórnar í samvinnu við verkfræði- og rágjafastofuna Lotu sem aðstoðar okkur í skipulagi og uppsetningu öryggimál. Í heildina gekk þetta allt ljómandi vel enda þó alltaf komi upp álitamál og ýmis atriði sem betur mega fara.

Til að raska ró okkar veikustu sjúklinga sem minnst, fengum við leikara frá Leikfélagi Mofellsbæjar til að koma og leika veika sjúklinga fyrir okkur sem prófuðu með okkur ýmsan búnað sem notaður er rýmingu fyrir fólk sem bundið er í hjólastóla eða er rúmliggjandi, til dæmis á sólarhringsdeildinni okkar Miðgarði. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir en hópinn frá Leikfélaginu má sjá á meðfylgjandi hópmynd ásamt Magnúsi frá Lotu og Guðmundi öryggisstjóra Reykjalundar.

Vert er að þakka öllu starfsfólki og skjólstæðingum Reykjalundar fyrir þátttökuna í æfingunni en æfingar sem þessar nýtast alltaf mjög vel til að gera fólk meðvitað um öryggi í sínu nánast umhverfi og hvernig bregðast á við í neyðaraðstæðum.

Skip to content