Fréttir : Forsíða » Róbotar sjá um sumarsláttinn á Reykjalundi
Á Reykjalundi eru rúmlega 3,5 hektarar túna sem þarf að slá á hverju sumri. Til verksins notum við 5 slátturóbota. Hér er nýjasti róbotinn sem slær allar brekkur sem eru með allt að 40° halla. Róbotarnir vinna allan sólarhringinn 7 daga vikunnar. Fyrsti sláttur á vorin er í kringum 20.maí og endum síðasta slátt kringum 15.október.
Heildarafkastageta þeirra 5 róbota sem slá túnin á Reykjalundi er u.þ.b 5 hektarar á sólarhring við bestu aðstæður.
Skip to content