Fréttir : Forsíða » Rekstraráskoranir Reykjalundar kalla á skýra framtíðarsýn í endurhæfingu

Rekstur Reykjalundar 2025 einkenndist af óvissu um framtíðarfyrirkomulag endurhæfingarþjónustu hér á landi. Afkoma ársins var neikvæð um 424 milljónir króna, þar af eru um 265 milljónir króna vegna niðurfærslu eigna og annarra einskiptisliða. Gripið hefur verið til víðtækra hagræðingaraðgerða og stefnt er að jöfnuði í rekstri á yfirstandandi ári.

Þrátt fyrir hagræðingaraðgerðir hefur tekist að veita áfram faglega endurhæfingarþjónustu samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Undanfarna mánuði hefur verið unnið markvisst að aukinni hagkvæmni og ábyrgri nýtingu fjármuna samhliða því að undirbúa starfsemina fyrir framtíðaruppbyggingu þegar skýrari forsendur liggja fyrir. Reykjalundur er óhagnaðardrifið félag í eigu SÍBS og rekið í almannaþágu. Reksturinn reiðir sig á skýrar og fyrirsjáanlegar forsendur í samstarfi við hið opinbera enda er Reykjalundur mikilvægur hluti af heilbrigðiskerfinu á Íslandi og eina heilbrigðisstofnunin hérlendis með CARF-gæðavottun í endurhæfingu.

Beðið er útgáfu heildstæðrar endurhæfingarstefnu hins opinbera auk þess sem langtímasamningur við ríkið um endurhæfingarþjónustu liggur ekki fyrir. Í slíkri stöðu skapast óvissa sem hefur í för með sér að frekari fjárfestingar og þróunarverkefni eru sett í bið, enda þótt þörf fyrir endurhæfingarþjónustu fari sívaxandi.

Í þessu samhengi bindur Reykjalundur vonir við að samtöl við heilbrigðisráðherra um framtíðarfyrirkomulag þjónustunnar beri árangur. Meðal úrlausnarefna er að finna  leiðir varðandi þátttöku ríkisins í húsnæðiskostnaði, líkt og annars staðar á Norðurlöndunum, en úr sér genginn húsakostur er helsta hindrunin í vegi starfseminnar.

Mikill vilji er hjá SÍBS til frekari uppbyggingar á landi SÍBS að Reykjalundi í þágu heilbrigðis þjóðarinnar, en ákvörðun þess efnis er nátengd því að langtímasamningur við ríkið um endurhæfingarþjónustu liggi fyrir.

Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Reykjalundar:
„Reykjalundur býr að miklum mannauði með víðtæka þekkingu á sviði endurhæfingar og meðferðar fólks með fjölþættan heilsuvanda. Í 80 ár hefur Reykjalundur gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi. Við viljum áfram leggja okkar af mörkum í góðu samstarfi við SÍBS og stjórnvöld, landi og þjóð til heilla. Til þess að svo megi verða þurfa skýrar forsendur að liggja fyrir.“

Skip to content