Fréttir : Forsíða » Rannsóknarráðstefna og meistaravarnir nemenda í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands

Þriðjudaginn 20. maí sl. var rannsóknarráðstefna og meistaravarnir nemenda í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands.
Starfsmenn Reykjalundar hafa tekið virkan þátt í að leiðbeina í og veita meistaraverkefnum í sjúkraþjálfun umsjón undanfarin ár og engin undantekning var á því þetta árið.
Tveir nemendur luku verkefnum sínum undir leiðsögn og umsjón Dr. Mörtu Guðjónsdóttur rannsóknarstjóra á Reykjalundi og dósent við Læknadeild Háskóla Íslands.

  1. Kristófer Máni Jónsson vann verkefni á verkjasviði Reykjalundar sem bar heitið „Langvinnir verkir: Langtíma áhrif Buteyko öndunarþjálfunar í endurhæfingu“.
  2. Tanía Björk Gísladóttir gerði yfirlitssamantekt (e. Scoping review) um  „Tengsl óskilvirkrar öndunar og stoðkerfisverkja“.

Á myndinni eru Kristófer Máni, Fríða Brá prófdómari, Marta umsjónarkennari og Tanía Björk.

Við óskum Kristófer Mána og Töníu Björk innilega til hamingju með áfangann.

Skip to content