Á dögunum fagnaði Reykjalundur nýrri og endurbættri útgáfu af HAM-bókinni á netinu. Það eru þau Inga Hrefna forstöðusálfræðingur og Fannar, forstöðumaður upplýsinga- og velferðartæknimála sem héldu utan um verkefnið. Við óskum þeim, sem og okkur öllum til hamingju með áfangann!
Hugræn atferlismeðferð (HAM) er vel rannsökuð sálfræðileg meðferð sem byggir á þeirri hugmynd að hugsanir, tilfinningar og hegðun séu nátengd. Meðferðin miðar að því að breyta neikvæðum eða skaðlegum hugsunum og hegðunarmynstrum sem valda eða viðhalda vanlíðan, kvíða og þunglyndi. HAM er ein af mest rannsökuðu og notuðu sálfræðimeðferðum í heiminum í dag. HAM hefur meðal annars reynst gagnleg við meðhöndlun á kvíðaröskunum (svo sem félagsfælni, almennri kvíðaröskun, ofsakvíða og áráttu- og þráhyggju), þunglyndi, áfallastreituröskun (PTSD), átröskunum, svefnvanda, þrálátum verkjum og öðrum líkamlegum kvillum.
Geðheilsuteymi Reykjalundar vann að þróun HAM-meðferðarhandbókar á íslensku og kom fyrsta útgáfa bókarinnar HAM: Handbók um hugræna atferlismeðferð út 2002. Lagt var upp með að bókin nýtist jafnt fagfólki sem meðferðarhandbók og einstaklingum sem sjálfshjálparbók. HAM-bók Reykjalundar eins og hún er oftast kölluð hefur verið í stöðugri þróun og kom 8. útgáfa út 2017 og er hún ennþá í fullu gildi.
Teyminu fannst mikilvægt að bókin gæti nýst sem flestum, að hún væri einnig aðgengileg einstaklingum með námsörðugleika eða þeim sem eiga erfitt með að einbeita sér til dæmis vegna hugrænnar þreytu, þunglyndis eða kvíða. Bókin var því einnig gerð aðgengileg í rafrænu formi og með hljóðskrám, með stuðningi frá Oddfellowstúkunni Þormóði goða og kom netútgáfa bókarinnar út 2011.
Árið 2018 fékk Reykjalundur styrk úr Lýðheilsusjóði til að þróa vefútgáfu bókarinnar áfram. Nú er ný og endurbætt HAM-bók aðgengileg á ham.reykjalundur.is – öllum opin, án endurgjalds.
Bókin skiptist í 12 kafla sem fjalla um grunnatriði HAM, þar á meðal:
- Kvíða og þunglyndi
- Markmiðssetningu og að takast á við vandann
- Tilfinningar og fimm þátta líkanið
- Hugsanaskekkjur og að breyta neikvæðum hugsunarhætti
- Atferlistilraunir
- Kjarnaviðhorf og lífsreglur
- Sjálfseflingu og ákveðni
- Bakslagsvarnir og fleiri leiðir
Verkefni fylgja hverjum kafla, hægt er að hlusta á hverja síðu fyrir sig eða hlaða niður hljóðbókinni í heild.

Fannar Sólbjartsson, forstöðumaður upplýsinga- og velferðartæknimála og Inga Hrefna forstöðusálfræðingur
