Af hverju hættir fólk að nota eitthvað sem virkar? Og af hverju gerir fólk ekki það sem það segist ætla að gera til að efla heilsuna sína?
Þessar spurningar urðu kveikjan að rannsókn Hrefnu Óskarsdóttur iðjuþjálf á Reykjalundi og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri.
Hrefna sagði frá niðurstöðum rannsóknarinnar í útvarpsþættinum Mannlegi þátturinn, sem hún segir að hafi verið bæði óvæntar og í raun mannlegar. Lausnin felst í meiri eftirfylgni sem getur í framhaldi sparað gríðarlegar upphæðir fyrir heilbrigðiskerfið.
