Lára Brynhildur Eiríksdóttir fagnaði 100 ára afmæli sínu þann 21. október sl. Lára Brynhildur afþakkaði afmælisgjafir og blóm, en bað þess í stað þá sem vildu gleðja hana við tímamótin að styrkja Hollvinasamtök Reykjalundar. Með því vildi hún láta 100 ára afmæli sitt verða Reykjalundi að liði, stað sem hefur lengi verið henni og fjölskyldu hennar kær.
Þegar forstjóri Reykjalundar, Svana Helen Björnsdóttir, heyrði um stórgjöf og hlýhug Láru Brynhildar hafði hún samband við hana til að þakka fyrir einstakan hlýhug og rausnarskap í garð Reykjalundar ásamt því að óska henni innilega til hamingju með aldarafmælið.
Svana Helen og Lára Brynhildur áttu gott og notalegt spjall þar sem meðal annars kom skýrt fram hversu umhugað Láru Brynhildi um Reykjalund. Hún bað fyrir kærar kveðjur til allra á Reykjalundi með orðunum:
„Lengi lifi Reykjalundur!“
Tengsl Láru Brynhildar Eiríksdóttur og fjölskyldu hennar við Reykjalund eiga sér langa sögu. Hún starfaði um árabil á skrifstofu Reykjalundar/SÍBS við Suðurgötu og Reykjalundur hefur alla tíð staðið hjarta fjölskyldunnar nærri.
Saga fjölskyldunnar tengist jafnframt þeirri mikilvægu samfélagsbaráttu sem lagði grunn að bættum aðbúnaði fólks með berkla og síðar fólks með fötlun. Elsta systir Láru, Rannveig Löve, var gift Guðmundi Löve, fyrrverandi framkvæmdastjóra Öryrkjabandalags Íslands, og stóðu þau ásamt mörgu öðru góðu fólki framarlega í þeirri baráttu.
Við á Reykjalundi óskum Láru Brynhildi Eiríksdóttur hjartanlega til hamingju með 100 ára afmælið og þökkum henni af öllu hjarta fyrir hlýhuginn og þá höfðinglegu gjöf sem ber svo fallega vitni um væntumþykju hennar til Reykjalundar.
Nánar má lesa um Láru Brynhildi Eiríksdóttur og hennar merka lífshlaup í skemmtilegu viðtali á Akureyri.net

