Fréttir : Forsíða » Kanadískir iðjuþjálfanemar deila reynslu sinni

Í dag er Alþjóðlegur dagur iðjuþjálfa og þema dagsins í ár er „Þátttaka skiptir máli“. Af því tilefni er sérstaklega ánægjulegt að deila hugleiðingum Christy Fehr og Damon Rutledge, iðjuþjálfanema frá Kanada, sem hafa dvalið í sjö vikur í klínísku starfsnámi hér á Reykjalundi.

Í hugleiðingum sínum segja þau frá reynslu sinni af náminu, kynnum sínum af íslenskri iðjuþjálfun og endurhæfingu og því sem þau taka með sér heim til Kanada. Þau lýsa jafnframt hlýjum móttökum starfsfólks og þeim fjölbreyttu upplifunum sem dvölin á Íslandi hefur fært þeim.

Það hefur verið mikil ánægja að hafa Christy og Damon hjá okkur á Reykjalundi, fá tækifæri til að kynnast þeim og miðla reynslu og þekkingu. Við þökkum þeim kærlega fyrir samveruna og óskum þeim alls hins besta í námi og starfi í framtíðinni.

Hér fyrir neðan má lesa hugleiðingar þeirra um dvölina á Reykjalundi og Íslandi á ensku.

Hugleiðingar Christy Fehr
Hugleiðingar Damon Rutledge

Skip to content