Fréttir : Forsíða » Heimsókn umsjónarmanna starfsnáms frá HR og HÍ

Á haustönn eru fimm meistaranemar í klínískri sálfræði í starfsnámi á Reykjalundi, þrír frá Háskólanum í Reykjavík og tveir frá Háskóla Íslands. Umsjónarmenn starfsnáms frá HR og HÍ komu saman í heimsókn þriðjudaginn 14. okt. Bettý Ragnarsdóttir frá HR og Andri Steinþór Björnsson frá HÍ. Þau funduðu með handleiðurum nemanna sem að þessu sinni eru sálfræðingarnir Gunnhildur, Inga Hrefna, Jórunn, Rúnar og Smári. Rætt var um áframhaldandi samstarf sem allir aðilar eru ánægðir með. 

Skip to content