Hópur frá Eistlandi kom í vettvangsheimsókn til Íslands og heimsótti m.a. Reykjalund til að kynna sér þverfaglega endurhæfingu hérlendis. Hópurinn kom á vegum skóla í Eistlandi þá sem bæði börn og fullorðnir eru við skólagöngu á ýmsu stigi. Fyrir einstaklinga sem glíma við ýmsar fatlanir sem eru meðfæddar eða í kjölfar veikinda. Starfsemi skólans byggir á þverfaglegri endurhæfingu gegnum skólastarfið sjálft og þar vinna kennarar og fagfólk í endurhæfingu saman að menntun og endurhæfingu. Bára Sigurðardóttir fostöðuiðjuþjálfi og Hlín Bjarnadóttir forstöðusjúkraþjálfari tóku á móti hópnum með kynningu á Reykjalundi og sýndu starfsemina hér innanhúss. Hópurinn var skipaður sjúkraþjálfara, iðjuþjálfara, félagsráðgjaf, sálfræðingi og samskiptafulltrúa og var gaman að skiptast á upplýsingu og fróðleik um starfsemi beggja stofnanna.