Fréttir : Forsíða » Gjöf frá Hollvinasamtökum Reykjalundar.
Efnaskipta- og offituteym Reykjalundar fékk nýverið veglega gjöf frá Hollvinasamtökum Reykjalundar sex nýja skrifborðsstóla frá Pennanum. Gjöfin kemur sér afar vel og bætir vinnuaðstöðu til muna.

Við erum mjög þakklát fyrir stuðninginn. Gjafir af þessu tagi skipta miklu máli fyrir starfsumhverfið og sýna hve mikilvægur stuðningur Hollvinasamtakanna er í daglegu starfi okkar.

Hollvinasamtökin hafa um árabil stutt við starfsemi Reykjalundar með ýmsum hætti og þessi gjöf er enn eitt dæmið um þann góða vilja sem þau sýna í verki.

Skip to content